Dásamlegt líf.
9.4.2011 | 17:47
Þá eru vorverkin formlega byrjuð, við sambýlingarnir drifum okkur út í garð eftir að hafa farið á kjörstað og kosið (það verður ekkert rætt um það mál hér) Runninn var orðin heldur hár (var hætt að sjá yfir til nágrannans og það gengur nú ekki hehehe) þannig að við redduðum okkur svakalegri runnaklippu með rafmagni í og Hallgrímur fékk smá útrás, með græjuna á lofti réðst hann á runnann og skar hann niður ég lét mér nægja að hanga á hrífuskaftinu og fylgjast með, eftirlit er líka algjörlega nauðsynlegt með svona vandasömum verkum og er enginn betur til þess fallin að fylgjast með og segja til heldur en hún ég :) Runninn er orðin töluvert lægri í loftinu en lýtur bara vel út :) hrífuvinnan var dásamlega skemmtileg, þegar ég var passlega búin að ná öllum greinunum samann í einn haug þá kom lognið á ógnarhraða og feykti því öllu út í skurð svo ekki þurfti að spá í það meir hmmmmmm þannig að ef þið kæru landsmenn sjáið greinaafklippur á ferðinni um háloftin eru þær sennilega frá mér þið þurfið ekkert að skila þeim þið megið alveg nota þær til að skreyta hjá ykkur ef þið viljið :) á morgun á svo að halda áfram að snyrta runnann ef lognið verður kjurt á sama stað, en það er ekki hægt að kvarta yfir því að geta sinnt vorverkunum á kvartbuxum og stuttermabol í rumum 20°c í byrjun apríl þetta er náttúrulega bara dásamlegt :) :)
Vorið að koma
26.3.2011 | 14:53
Vorið er komið og grundirnar gróa.
Mikið eru nú dagarnir yndislegir þegar sólin skýn og vorilmurinn fyllir loftið, hitinn á þessum ágæta laugardegi er kominn í 12 gráður og ekki kvartar maður þegar hitinn verður svona mikill í mars :) Undarlegt (eða ekki) hvað maður fær mikla þörf fyrir hreingerningar (sérstaklega glugga) og moldarstúss þegar vorið fer að láta sjá sig, það er einhver sérstakur ilmur í loftinu sem ber með sér von um betri tíð með blóm í haga :) ekki það að tíðinn hafi verið slæm held að það sé varla hægt að kvarta undann þessum vetri nema þá helst að hann hefur ekki verið viss hvort hann á að vera eða ekki.
Í gærkveldi las ég 3ja ára gamalt blogg fráþví að við Sigmar Örn fórum í Nýraaðgerðina okkar, það var svolítið skrítið að rifja þetta upp, ýmislegt sem ég var búinn að gleyma en varð ljóslifandi þegar bloggið var lesið og sérstaklega það sem ekki var skrifað um. Mér finst alltaf jafn stórkostlegt að það skuli vera hægt að gefa úr sér líffæri og lifa á eftir eðlilegu lífi en jafnframt að bjarga öðru lífi með þessari stórkostlegu gjöf. Ég man að ég var hálf miður mín yfir því að þegar ég væri búin að gefa Sigmari nýrað mitt þá gæti ég ekki gefið hinum drengjunum mínum nýra því það væri ekkert eftir til skiptanna ég var ekkert að spá hvort ég passaði eins vel við þá eins og Sigmar það var algjört aukaatriði, ég er mamman og þá passar þeta bara ;) svo var eins og ég gerði bara ráð fyrir því að þeir þyrftu á nýju nýra að halda, sem betur fer þá er það nú ekki svo ég veit ekki betur en þeir séu við hestaheilsu báðir tveir og ekki í neinni þörf fyrir mín líffæri, en svona getur maður nú stundum hugsað furðulega. Eins velti ég mikið fyrir mér hvort Sigmar fengi kannski hluta af sálinni minni með nýranu vaknað upp með mínar minningar, í dag þykja mér þetta frekar fáránlegar pælingar en svona getur nú hugsunin farið af stað þegar aðstæðurnar eru öðruvísi en venjulega.
Nýársgjöf stjórnvalda til nýrnasjúkra.
12.2.2009 | 17:29
Jæja enn eina ferðina blöskrar mér.
Ég var að fá fréttabréf frá félagi nýrnasjúkra sem er nú yfirleit bara ánægjuleg lesning en í þetta skiptið var þar grein sem bar stjórnvöldum ekki fallega söguna. En 1. janúar 2009 tók í gildi reglugerð frá heilbrigðisráðuneytinu um hlutdeild sjúkratryggðra í kostnaði vegna heilbrigðisþjónustu. Samkvæmt reglugerðinni er gjaldtöku krafist af þeim sem þurfa á blóðskilun að halda en slíkt hefur ekki þekkst í þau 40 ár sem meðferð á lokastigsnýrnabilun hefur verið framkvæmd hér á landi. Ekkert af hinum Norðurlöndunum innheimtir gjald fyrir þessa lífsnauðsynlegu þjónustu. Þrátt fyrir stjórnaskipti hefur ekkert breyst. Búið er að senda þáverandi heilbrigðisráðherra áskorun um að fella gjaldið niður en ekkert gerðist þegar nýr ráðherra tók við voru komugjöld á sjúkrahús lögð af en það átti ekki við um dagdeildir eins og skilunardeildina, hvað ráðherra er að meina með þessu fæ ég ekki skilið.
Nú er ég hneyksluð...
3.1.2009 | 00:07
jóla jóla jóla
26.12.2008 | 16:43
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 16:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Jólaljós
6.12.2008 | 22:37
Fórum einn jólaljósarúnt um bæinn eftir kvöldmat og bærinn er bara að verða ansi jólalegur, flestir byrjaðir að setja ljósin upp en ekki allt komið enn og er það bara ástæða til að hlakka til og fara annan ljósarúnt. Við vörum agalega dugleg í dag og settum útiseríuna upp það þurfti reyndar tvær tilraunir en nú vitum við hvernig hún á að snúa og hvar á að byrja þetta var bara fjör setja seíuna upp og taka niður snúa henni við og setja hana svo upp aftur hehe þetta var bara fjör, svo eru inniljósin svona smátt og smátt að komast upp og á rétta staði, ég held að ég hafi ekki verið svona snemma í ljósauppsetningu áður, sennilega er ég eitthvað að mildast í hefðunum en hér á árum áður fóru engin ljós upp fyrir 15.Des nema aðventuljósið. Kortin fara að verða tilbúin til áritunar og stefnan er að fara í laufabrauð á morgun, þá get ég líka farið að þvo ofan af eldhússkápunum og setja upp jólagardínurnar þá geta jólin bara bráðum komið, allt að verða klárt.Ver reyndar að viðurkenna að ég er svo gjörsamlega galtóm af jólagjafahugmyndum að það er spurning hvort jólagjöfin í ár verði ekki geit.....
Ritgeðin í siðfræði er farin og nú sit ég bara og bíð eftir svari frá kennaranum hvað ég fæ fyrir seinna prófið og ritgerðina en ég er búin að fá úr fyrra prófinu og var bara sátt við útkomuna þar ( 9,5) vona að ég hafi ekki klúðrað neinu stórkostlega svo ég lækki ekki mikið.
skemmtileg afmæli
17.11.2008 | 18:22
Tímamótalækningar hvað !!!!!!!!
2.11.2008 | 21:20
Tímamótalækningar við flensu
1.11.2008 | 16:15
leiðindaveður og skrítnir draumar
26.10.2008 | 22:48
Ekki er alltaf slæmt að fá vont veður þessa helgina t.d er búið að vera hreint skítaveður kalt og hvasst í gær og slydda, rok og svo snjókoma í dag. Ég nýtti tímann í að lýta í námsbækurnar og ekki veitti nú af maður minn, á að skila prófi 1.nóv og átti eftir að lesa rúmlega 100 bls í siðfræði en þar sem veðrið var svo leiðinlegt hitaði ég mér bara kakó (gott við freknum ) settist inn og las og las og las og er að verða búin með prófið á bara eftir að fínisera það aðeins.
Í fyrrinótt var brjálað að gera hjá mér mig dreymdi svo mikið, ég var að bjarga afkomendum Rússnesku keisarafjölskyldunnar frá einhverjum hryðjuverkahópi sem slátraði heilu þorpi til að komast að krökkunum en þau komust undan svo þurfti að bjarga Dönsku konungsfjölskyldunni sem var haldið leyndri í kjallara en á efri hæðinni bjó fjölskylda sem þóttist vera konungsfjölskyldan sú ekta komst undan á flótta en þau áttu töfraolíu sem þau báru á sig og þá gat ekkert komið fyrir þau konungsfjölskyldan átti nokkrar hallir og þær voru allar alveg snjóhvítar og sléttar eiginlega eins og turnar. Ég var alveg dauðþreytt þegar ég vaknaði það var sko brjálaður hasar í báðum draumum. Vonandi sef ég bara draumlaust í nótt.