Nýja dótið mitt...

Eftir símahrakningarnar hér um daginn þá sá ég að ekki get ég alveg verið símalaus nei nei það gengur ekki, læt nú ekki þagga svo auðveldlega í mér ( þó svo að ég hafi nú eiginlega sjálf séð um að koma símaræflinum fyrir kattarnef) þannig að ég brunaði í héraðið  -jájá núna var heiðin góða fær- og fjárfesti í einum hrikalega flottum og auðvitað bleikum síma InLove  er búin að vera í allan dag að leika mér og komast að ótrúlegum hæfileikum nýja vinar míns er t.d búin að hlaða inná hann heilum haug af lögum og það heyrist ótrúlega vel í honum. Ég leitaði um allt af nýjum hringitónum en fann ekkert sérlega spennandi, fattaði svo þegar ég var búin að setja öll lögin í símann að ég get notað þau sem hringitóna Grin  hann er bara æði

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Anna Guðbjörg Sigmarsdóttir

hehehehe þessi eðalgripur verður vel varðveittur og fær hvorki tjöruheinsun eða annan þvott.

Anna Guðbjörg Sigmarsdóttir, 4.5.2008 kl. 15:41

2 Smámynd: Helgan

auðvitað Bleikur ánægð með þig Anna

Helgan, 7.5.2008 kl. 10:43

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband