hönnunarvinna
5.6.2008 | 21:38
Það er búið að vera brjálað að gera hjá mér að endur hanna, endurinnrétta og klæða nýja húsið mitt sem við erum alveg að fara að kaupa, er að verða búin að öllu innanhúss svo núna er það garðurinn. Er að skipuleggja rosalega flottan skrúðgarð og matjurtagarð ætli hann verði ekki tilbúinn um helgina, var að helluleggja innkeyrsluna áðan og ég get sagt ykkur að þetta verður hrikalega flott.
Fórum um allan bæ í dag að ná okkur í kassa, það er allt að verða klárt fyrir pökkun, svo það er eins gott að ekkert klikki í kaupunum.
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Facebook
Athugasemdir
Það er aldeilis mikið um að vera hjá þér. Til hamingju.
Jón Halldór Guðmundsson, 7.6.2008 kl. 01:33
takk takk en af því að við erum ekki alveg búin að kaupa þá eru framkvæmdirnar ennþá sko á hugmyndastigi og öll vinnan fer fram í hausnum á mér bara svo enginn misskilningur sé í gangi. En þetta er búin að vera mikil vinna fyrir það hehehehehehehe
Anna Guðbjörg Sigmarsdóttir, 7.6.2008 kl. 16:11
dugleg í hönnunarvinnu í hausnum spara helling að vera búin að sjá þetta fyrir sér og hanna áður en allt fer í gang gangi þér vel og það klikkar ekkert í húsakaupunum
kveðjur frá Selfossi
Helgan, 10.6.2008 kl. 21:25
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.