Nýja dótið mitt...
3.5.2008 | 20:55
Eftir símahrakningarnar hér um daginn þá sá ég að ekki get ég alveg verið símalaus nei nei það gengur ekki, læt nú ekki þagga svo auðveldlega í mér ( þó svo að ég hafi nú eiginlega sjálf séð um að koma símaræflinum fyrir kattarnef) þannig að ég brunaði í héraðið -jájá núna var heiðin góða fær- og fjárfesti í einum hrikalega flottum og auðvitað bleikum síma
er búin að vera í allan dag að leika mér og komast að ótrúlegum hæfileikum nýja vinar míns er t.d búin að hlaða inná hann heilum haug af lögum og það heyrist ótrúlega vel í honum. Ég leitaði um allt af nýjum hringitónum en fann ekkert sérlega spennandi, fattaði svo þegar ég var búin að setja öll lögin í símann að ég get notað þau sem hringitóna
hann er bara æði
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Facebook
Athugasemdir
hehehehe þessi eðalgripur verður vel varðveittur og fær hvorki tjöruheinsun eða annan þvott.
Anna Guðbjörg Sigmarsdóttir, 4.5.2008 kl. 15:41
auðvitað Bleikur ánægð með þig Anna
Helgan, 7.5.2008 kl. 10:43
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.