Sumarið kom og fór
30.4.2008 | 08:59
já já það kom sumar hérna um daginn en það er sko kominn vetur aftur hér á mörkum hins byggilega heims. Akkúrat núna á ég að vera á leiðinni norður til Akureyrar en viti menn Fjarðarheiðin er ÓFÆR ARRRRRRRGGGGGGGGGGG og garg
. Hvar eru göngin sem okkar ágæti samgönguráðherra var svo jákvæður gagnvart áður en hann settist í embætti???? Nei hér er ekki þörf á göngum við getum bara verið innilokuð hálft árið fyrst við erum svo vitlaus að kjósa okkur það að búa hér og farþegar sem koma með Nörrönu geta bara farið sjóleiðina suður, munar ekkert um einn dag eða tvo í viðbót á sjó þ.e ef einhver nennir að skuttla þeim
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 09:05 | Facebook
Athugasemdir
ja ætli ég verði ekki að bíða með það aðeins, en það kemur að því einn daginn að ég kemst norður.
Anna Guðbjörg Sigmarsdóttir, 1.5.2008 kl. 15:56
ófært ha maður sér nú varla snjó hér sunnanlands bara sumar og sól og smá rok
Gaman að lesa skrifin þín las doldið aftur í tímann þegar ég sá myndina ad skurðinum og ég verð nú bara að segja eitt þú ert HETJA
Kveðja frá Selfossi
Helgan, 2.5.2008 kl. 09:30
Takk fyrir það Helga mín en hvað gerir maður ekki fyrir börnin sín þó svo að þau séu orðin fullorðin já við hér fyrir austan fáum snjóinn og lognið
bið að heilsa á Selfoss
Anna Guðbjörg Sigmarsdóttir, 2.5.2008 kl. 11:56
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.