ferðaplan
1.4.2008 | 20:26
Ákvörðun var tekin í morgun ég er að fara heim.............. Reyndar með smá krókum en þar sem ég bý austur á hjara veraldar er það ekkert einfalt mál að leggja í svona ferðalög hehehehe en allavega þá er Sigmar búinn að fá öll tilskilinn leyfi og fær frí í föstudagstékkinu og má fara í flugvél svo við ætlum að keyra norður á Akureyri á morgun, þegar hann er búinn í sinni skoðun hann flýgur svo suður aftur á sunnudaginn svo hann getur hitt pabba sinn, strákanna og ömmu og afa og kannski fleiri. Ég fer svo austur þegar blessunin hún Fjarðarheiði verður fær venjulegum farartækjum en þarf ekki að fara á snjóbíl yfir.
Í dag fórum við Sigmar til Grindavíkur hann fór til ömmu og afa en ég til hennar Írisar vinkonu minnar. Við spjölluðum í marga klukkutíma og drukkum kaffi svo sjá má að maginn er mikið betri, ferðin var alveg yndisleg og gott að hitta hana Írisi mína aftur eftir allt of langan tíma.
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.