Draumar.......
10.2.2008 | 21:54
Jæja nú fer að styttast í aðgerð komnar eru 2 dagsetningar 6.eða 7. Mars þannig að ekki eru nema rúmar 3 vikur þangað til. Hann Sigmar Örn ætlar að koma austur um næstu helgi að heimsækja okkur, vonandi að sú ferð fari betur en jólaferðin. Annars er mig búið að dreyma svo mikið núna undanfarið að þegar ég vakna er ég alveg uppgefin því þetta eru engir rólegheita ljúflings draumar nei nei það er allt á fullu sko og alltaf er ég eitthvað að vesenast, hjálpa til við flutninga velja jólagjafir fyrir ókunnuga eða bjarga Sigmari úr gíslingu eða hjálpa til við eitthvað. Fólk sem ég þekki ekki neitt hvorki í draumi eða veruleika er að deyja og ég er að aðstoða aðstandendur, veit ekki alveg hvað þessir björgunar og hjálpar draumar eiga að þýða. Veit að ég hef haft töluverða björgunarþörf gegn um tíðina en fyrr má nú vera.
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Facebook
Athugasemdir
Alltaf nóg að gera hjá þér, hvort sem er í vöku eða svefni. Ég er strax farin að sakna þín, gangi ykkur geggjað vel. Kannski hitti ég á gullmolan þinn um helgina.
KKKKKnnnnnnúúúússssss frá hinum enda bæjarins.
Lilja Björk Birgisdóttir, 12.2.2008 kl. 11:13
þú ert alltaf velkomin Lilja mín koddu bara aldrei að vita nema ég lumi á kaffi og súkkulaði
Anna Guðbjörg Sigmarsdóttir, 12.2.2008 kl. 17:39
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.