Innvortis jólahreingerning............
4.12.2007 | 19:40
Jólahreingerningin á heimilinu fór gjörsamlega úr böndunum í gær, ég gerði ekkert annað en að drekka vatn og tæra bollasúpu í allan gærdag kl 16.00 byrjaði svo drykkja á úthreinsunarlyfi ojjjjj heilir fjórir lítrar voru drukknir og eftir það var baðherbergið upptekið.... Þvílík skemmtun ...... en ég varð alveg örugglega hrein á eftir. Í morgun átti ég svo að fara á Neskaupstað í ristil og magaspeglun en nei nei þegar maður býr á mörkum hins byggilega heims er ekki hægt að reikna með því að maður komist leiðar sinnar þegar maður á þarf að halda. Þegar við vorum að komast á fagradalinn var færðin orðin þannig að ekki sást út úr augum hvað þá lengra svo við snérum við og ég fór heim tandurhrein að innan en óspegluð. Ég sem var orðin þvílíkt spennt yfir því að fá slöngur þrædd í öll göt
. Hvernig svosem heimilið verður þá er það klárt að húsmóðirin verður hrein að innan um jólin..
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.