Tenerife hér kem ég..................

Jæja þá er búið að redda utanförinni minni, einhver góðhjartaður hætti við að koma heim 14. nóv hefur sennilega frétt af vandræðum mínum og ákveðið að vera lengur. Svo við getum haldið okkur við upphaflega áætlun. Nú er bara að draga fram ferðatöskuna og finna sólarvörnina Cool Nýja vegabréfið er komið í hús og bleiku bandaskórnir mátaðir reglulega Smile. Þetta verður kærkomið frí svo þegar ég kem heim ætla ég að eyða nokkrum dögum í borginni með Sigmari, hann á reyndar afmæli daginn áður en við förum út svo við ætlum að gera eitthvað skemmtilegt saman.

Sigmar er kominn í einangrun fékk sýkingu í þarmana og má ekki vera úti á meðal fólks. Það má þó fara til hans en þá verður að fara í slopp og hanska. Hjúkkurnar eru samt vongóðar um að geta útskrifað hann af einangruninni fyrir helgi , planið var nú að útskrifa hann af spítalanum fyrir helgi en það gæti nú allt breyst. það er bara óskandi að hann missi ekki af afmælinu hjá ömmu sinni (80) um helgina .Pabbi hans, Gunna og bræður ætla að fara suður svo hann ætti að fá að sjá ný andlit, amma hans á Dalvík var fyrir sunnan og heimsótti hann auðvitað honum til gleðinnar ( litli ömmudrengurinn Wink).


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hafdís Jóhannsdóttir

Góða ferð erlendis,  sendi bestu bata og baráttu kveðjur til Sigmars.  Annars bara að kvitta fyrir mig.

Hafdís Jóhannsdóttir, 28.10.2007 kl. 13:27

2 Smámynd: Anna Guðbjörg Sigmarsdóttir

Takk fyrir það  

Anna Guðbjörg Sigmarsdóttir, 28.10.2007 kl. 15:42

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband