Svört bá og marinn !!!

Eftir þrjár blakæfingar eru hendurnar á mér eins og ekið hafi verið yfir þá á valtara.... svört blá og marinn frá þumalfingrum upp að olnbogum, það er ekki hægt að segja annan en að tekið sé á því Joyful við vorum að æfa smass í kvöld og ég þakkaði nú bara fyrir ef ég hitti boltann, í uppgjöfunum eru sýndir snilldartaktar þá  fer boltinn ýmist undir netið eða yfir á hinn völlinn   hehe  ótrúlega góð, verð örugglega kominn í landsliðið í næstu viku.. hehehe  það er að seigja ef ég kemst fram úr rúminu fyrir harðsperrum ............. að maður skuli leggja þetta á sig viljandi og borga fyrir þjáninguna , held bara að það sé ekki í lagi .... annars voru allar æfingarnar mjög skemmtilegar og þaulvönu stelpurnar sem eru ótrúlega flinkar eru búnar að vera mjög góðar við okkur nýliðana og duglegar að hvetja okkur áfram þó að við hittum ekki boltann eða skjótum honum hálfa leið uppá hérað. Vona bara að ég komist framúr á morgun og niður tröppurnar held að það gæti orðið all svakalega erfitt....


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband