Gleðilega þjóðhátíð

Gleðilegann þjóðhátíðardag Smile 

ætli það sé ekki kominn tími til að koma með smá fréttir, orðinn mánuður síðan ég bloggaði síðast. Mánuðurinn hefur svolítið farið í að njóta þess að skólinn er búinn. Við Ársæll fórum norður um sjómannadags helgina, vorum í góðu yfirlæti hjá Sigmari Erni í Hrísey hittum loksins hana Bylgju og Emblu dóttur hennar það er svolítið skrítið að vera orðin svona ská amma en bara gaman Smilemér líst bara vel á þessa litlu fjölskyldu óska þeim alls velfarnaðar í framtíðinni. Við litum líka til Þorvaldar og Helgu og svo komu þau til okkar á laugardeginum og við grilluðum öll saman svo þessi helgi var ljómandi góð. Um síðustu helgi var uppskeruhátíð blakliðsins og fórum við út í Skálanesfjöru grilluðum sungum og spiluðum strandblak það var mjög skemmtilegt, auðvitað var fundið nafn á viðburðinnog var þetta opna g-strengsmótið í strandblaki, eðli málsins samkvæmt var spilað á g-strengnum Cool og sýndu menn og konur ný og skemmtilg tilþrif í fjöruborðinu var stungið uppá því að gera þetta árlega við mikinn fögnuð allra viðstaddra. í bítið morguninn eftir (laugardag) fóru bæjarbúar í vinnugallann vopnaðir vinnuhönskum og ruslapokum og hreinsuðum við bæinn okkar týndum upp sígarettustubba og glerbrot. Undarlgt hvað þetta virðist mikið lenda á víðavangi var að velta því fyrir mér hvort stubbarnir væru svona eðlisléttir að þeir fykju alltaf uppúr rulatunnunum eða hvað ????? og flöskurnar svona þungar þá ?? en allavaga þá var bærinn hreinsaður og er nú alveg glerfínn Smile Í gær 16.júní opnaði svo tækniminjasafnið (vjelasmiðja Jóhanns Hanssonar) með pompi og prakt í stórkostlegu veðri 20 gr hiti  sól og blíða þar gat Ársæll Helgi sýnt okkur Hallgrími hvað hann er búinn að vera að vinna undanfarna mánuði ég verð að viðurkenna að mér fannst ég stundum vera kominn í bílskúrinn hjá afa á Klettaborg.   En þá eru það bækurnar sem ég hef verið að lesa undanfarið.  "Hvítt á Svörtu" e Ruben Gallego mjög sérstök saga sem gerist í Rússlandi og segir frá lífi fatlaðs drengs og hvernig það er að vera fatlaður á stofnun í Rússlandi í upphafi bókarinnar sesist höfundur ekki hafa áhuga á að skrifa um það slæma þaðsé nóg af svartsýni í heiminum. Kaflarnir eru stuttir  enda er bókin eiginlega byggð upp eins og mynningabrot sem púslast saman í eina bók mjög athyglisverð. svo er það "Viltu vinna milljarð" e-Vikas Swarup stórgóð bók en báðar þessar bækur fá mann til að hugsa um hvað mannskeppnan getur verið miskunarlaus í grimmd sinni og hvað hæfni okkar til að lifa af er sterk.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hafdís Jóhannsdóttir

Til hamingju með "ská" ömmu hlutverkið.     Heyrist þetta hafa verið viðburðaríkur og skemmtilegur mánuður hjá þér

Kv. Hafdís jóhanns

Hafdís Jóhannsdóttir, 18.6.2007 kl. 01:42

2 Smámynd: Anna Guðbjörg Sigmarsdóttir

Takk takk  já það er búið að vera nóg að gera og ekki búið enn, ætli það fari ekki að róast þegar ég fer í sumarfrí

Anna Guðbjörg Sigmarsdóttir, 18.6.2007 kl. 19:33

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband