ekki er öll vitleysan eins
30.5.2008 | 10:38
ja hérna hér !!!!! hreinn þvottur gerir bæinn subbulegan, getur fólki leiðst mikið meir en að finna upp á svona dauðans vitleisu það væri kanski spurning að fólk fengi áminningu ef þvoturinn er búinn að hanga og lengi á snúrunum, það gæti verið atvinnuskapandi að vera með svona þvottasnúrueftirlitsmenn hehehehehehehehehe
Snúrubann afnumið | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Vinir og fjölskylda | Breytt 31.5.2008 kl. 13:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Í sól og sumaryl
26.5.2008 | 20:33
Dásamleg helgi liðinn og hversdagurinn tekinn við með sól og sumarhita á föstudagskvöldið fórum við nokkrar leikskólakonur út að borða og fengum fatavals leiðbeiningar hjá stílistanum okkar henni Ingu, það er sko alveg nauðsynlegt fyrir hvern vinnustað að hafa allavega einn stílista svona fyrir heildarlúkkið við borðuðum alveg hrikalega gott kjúklingasalat á Öldunni og þegar við vorum búnar að borða hurfum við ein af annarri upp á efri hæð til Ingu þar sem hún líkamstýpu greindi okkur og gaf okkur ýmis góð ráð hvernig við getum gert okkur sem æðislegastar með réttu fatavali. Á laugardaginn opnaði svo Eygló fataverslunina Prýði og þangað flykktust leikskólakonur að ná sér í nýjar flíkur og nýta sér góð ráð stílistans með fullann poka af dásemdum var haldið heim og í nýju nýju fötin, búið var að bjóða í stútendaveislu svo það var um að gera að sýna sig fíneríinu. Við enduðum svo kvöldið á júróvisjon-blakloka partýi í íþróttahúsinu( búin að setja inn myndir) þar sem þemað var bleikt svona til að vera í stíl við eurobandið mín kom með bleikt nagglalakk , ekki voru það margar neglur sem sluppu, og ein og ein tánögl fékk fagurbleikan lit. Skemmtum okkur konunglega þó svo að okkar fólk kæmist ekki nema í 14. sæti, blakarar ársins voru kosnir og öllum að óvörum voru Kolla og Óli bæjó hlutskörpust, til lukku með það bæði tvö
Ég er búin að fá út úr prófunum loksins og fékk 9.0 í hreyfingu og þroska og 8.0 í félagsfræði er svona sæmilega sátt við það en hefði nú kosið að fá 10.0 í þroska og hreyfingu en þar sem ég gat ekki mætt í nema einn tíma vegna aðgerðarinnar var ég lækkuð um 1.0 svo vil ég fá að vita hvað ég fékk fyrir síðasta verkefnið mitt ekki bara heildareinkunn og líka hvað ég fékk fyrir skrifuðu spurningarnar á prófinu ekki bara krossaprófið. Allavega er nokkuð ljóst að ég verð að standa mig betur í haust, er allavega ekki sátt við áttuna, veit alveg að ég get gert betur.
!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!
22.5.2008 | 11:28
Nú fer óðum að styttast í að árgangurinn minn hér á Seyðis ætli að hittast, en það hefur skapast um það hefð hér að á sjómannadaginn eru ágangamót. Þau eru eðlilega misfjölmenn því bæði er fólk misduglegt að mæta svo hafa nú ekki allir árgangar hér verið stórir. Mér skilst að í ár gæti orðið mannmargt því það eru óvenjumargir árgangar sem ætla að hittast og er það bara vel. Í mínum árgangi erum við sennilega 7 búsett á staðnum aðrir væntanlega dreifðir um stór Reykjavíkursvæðið. Held að við höfum verið í kring um 20-25 ca man það þó ekki alveg.
Í gær hringdi svo bróðursonur minn hann Andri í mig og bauð mér í útskriftarveisluna sína ég fór strax að plana ferð suður og hlakkaði mikið til en auðvitað var þetta ekki svo auðvelt að bara væri hægt að panta ferð og pakka niður nei ekki þegar hún ég á í hlut takk fyrir, útskriftin og árgangamótið er nefnilega sama dag, og auðvitað vill ég vera á báðum stöðum en ekki hvað. Eitthvað verð ég að hugsa þetta, hvað ég á að velja.
Í húsamálum er ekkert að frétta við gerðum tilboð í hús en fengum ekki, svo fréttum við af góðu húsi sem væri að fara á sölu en þegar betur var að gáð reyndist það ekki rétt vera svo við erum enn að leita, framboðið hér er ekkert sérlega mikið eða spennandi.
kominn tími á smá blogg
14.5.2008 | 10:22
já ég veit ég hef ekki verið dugleg að blogga mikið undanfarið, en það má nú lengi úr bæta. Allavega þá sit ég og bíð eftir einkunnum úr prófinu og verkefnunum er búin að fá úr öðru verkefninu í Þroska og hreyfingu og ekki var að spyrja að því við Lilja fengum sko 9,9 við erum bara bestar saman en svo eigum við eftir að fá úr hinu verkefninu sem við gerðum líka saman þannig að það hlýtur að vera eitthvað mjög gott og svo samfélagsfræðin en ég á nú ekki von á að það verði nein 10 þar. Við tókum prófið heima á netinu og gátum farið yfir það á eftir og séð hvað var vitlaust, ég var nú ekki alveg sátt við hvað ég gerði margar vitleysur (4) því þetta var ekki þungt próf það kom bara í ljós að ég hafði ekki lesið nógu vel í vetur því það sem ég gerði vitlaust var algjört gisk útí loftið og í prófum á maður ekkert að vera að giska, heldur bara muna það sem búið er að lesa og þá er allrabest að vera búin að lesa bækurnar ekki bara stikla yfir, svo ef ég ætla ekki að verða svona fúl aftur yfir einkunnum þá er eins gott að haga sér eins og manneskja og lesa námsbækurnar.
veðrið hér fyrir austan er búið að vera yndislegt, sól og hiti enda er allur snjór að verða farinn úr bænum, helgin fór líka aðallega í að sitja úti með kaffið í sólinni og fara inn öðru hvoru og kæla sig það er líka eins gott að njóta þess á meðan hægt er því auðvitað á að kólna um helgina og ekki lítur veðurspáin beint vel út fyrir minn elskulega og ferðafélaga hans um helgina, eitthvað var nú samt minni rigningaspá í gær en það verður að öllum líkindum kalt á Hvannadalshnjúki. Ég skal alveg viðurkenna að ég er frekar spæld að komast ekki með en hnjúkurinn er víst ekkert á förum þannig að ég hlít að komast þetta einhverntímann
Spennufall
9.5.2008 | 10:12
já það er ekki laust við að í augnablikinu sé spennufall i gangi ég var nefnilega að klára félagsfræðiprófið rétt áðan. Var búin að kvíða því helling að tölvugersemin tæki nú upp á því að slökkva á sér í miðju prófi og allt ónýtt sem ég væri búin að gera, hún hefur nefnilega tekið upp á þessum líka "skemmtilega" ósið blessunin, hún fraus einu sinni og slökkti á sér einu sinni í gærkveldi þegar ég var að hamast við að fara yfir og prenta út glósur og annað efni sem ég ætlaði að nota í morgun. Til allrar lukku var tölvan til friðs og blaðabunkinn útprentaði liggur nánast óhreifður á borðinu Held ég fari og fái mér jarðarber og melónu og síðan í smá göngu í rigningunni. ég fór í sund í morgun kl 6 mmmmmmm það var svo gott en held ég þurfi að fara út og ná úr mér spennunni
Nýja dótið mitt...
3.5.2008 | 20:55
Góðir og ekki svo góðir dagar..
2.5.2008 | 12:28
Sumarið kom og fór
30.4.2008 | 08:59
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 09:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
JIBBÝ JA JEYYYY
29.4.2008 | 14:37
Þá er síðasta verkefnið í skólanum farið og sennilega þvottavélardælan líka er mikið glöð með að vera loksins búin að senda verkefnið frá mér en ekki eins sátt við þvottavélardrusluna, það er þó bót í máli að samkvæmt úrskurði yfirlæknis þvottavéla í stórfjölskyldunni þá er þetta nú ekkert stórmál og ætti húsbandið alveg að geta skipt um dælu sjálfur ef sérfræðingurinn útskýrir gegn um síma. nema hókus pókus tæknin verði notuð...
Helgin var ljómandi fín, við í fráfarandi þorrablótsnefnd hittumst á laugardaginn í golfskálanum grilluðum nokkur lambalæri, borðuðum á okkur gat og rúlluðum heim mikið var sungið og hlegið og sú hugmynd kom upp á þar sem við gerðum tvo sali klára fyrir þorrablót þá yrðum við að halda tvö slútt, eitt fyrir hvorn sal. Framundan er annað slútt en blakarar eru að fara vestur á Ísafjörð á morgun að slútta vetrarstarfinu með öldungamóti í þetta skiptið ætla ég að vera heima Hallgrímur fær að fara eftirlitslaus vestur og vonandi skemmtir hann sér bara vel. Eftir helgina byrja ég svo loksins að vinna aftur, reyndar bara hálfann daginn en það er líklega bara alveg nóg
GLEÐILEGT SUMAR
25.4.2008 | 11:17
Hér tók sumarið á móti okkur með þoku og það niður í fjöru ekki sást glitta í Bjólfinn fyrr en um hádegi en þá fór nú líka að birta all verulega og sú gula lét meira að seigja sjá sig. Kirkjukórinn hélt skemmtun í Herðubreið í tilefni sumarkomunnar og dreif ég mig þangað. Það var gaman að sjá hvað það mættu margir og endalaust var verið að bera inn fleiri borð og stóla fyrir mannfjöldann. Skemmtunin var hin ágætasta kórinn söng nokkur lög svo komu nú börnin á leikskólanum og sungu við gítar undirleik Gullu, þau voru yndisleg þessar elskur og stóðu sig mjög vel, nokkrir af yngri nemendum tónlistarskólans spiluðu á hljóðfærin sín, Cesil hélt smá tölu um sumardaginn fyrsta og skólahljómsveitin spilaði og Alla stjórnaði fjöldasöng svo sáu stelpurnar á hótelinu um að enginn færi svangur heim því auðvitað var hægt að fá kaffi og kökur. Góð byrjun á góðu sumri